Kortasjóður Thorvaldsensfélagsins var stofnaður árið 1994 og er hans helsta hlutverk að gefa út jólakort ár hvert þar sem ágóði sölu þeirra rennur til sykursjúkra barna og unglinga.
Hægt er að kaupa jólakortin hjá Thorvaldsensbazar, Austurstræti 4, í síma 551 3509 og með þvi að hafa samband á bazar@thorvaldsens.is. Einnig fást þau í verslunum A4, Lyf og heilsu, Apótekaranum, Rimaapóteki og Urðarapóteki.
Jólakortin koma 10 í pakka (12×16 cm) og kosta 1500 krónur. Jólamerkin eru 12 stk saman á örk á 400 krónur.
Reikningsnúmer kortasjóðs er 324-13-800115. kt. kt. 650269-6839
Stjórn Kortasjóðs 2019-2021
- Sif Sigurvinsdóttir, formaður
- Ethel Sigurvinsdóttir
- Guðrún Austmar Sigurgeirsdóttir
- Halldóra Margrét Helgadóttir
- Rósa Steinunn Jónsdóttir
Kortasjóður hefur sérstaka 5 manna stjórn sem kosin er á hverjum aðalfundi.