Thorvaldsensfélagið var stofnað 19. nóvember 1875
Miklar breytingar hafa orðið í þjóðfélaginu síðan Thorvaldsensfélagið var stofnað. Samt er full þörf fyrir góðgerðar- og líknarfélag þar sem sjálfboðaliðar leggja öðrum lið með starfi sínu. Thorvaldsensfélagið hefur átt því láni að fagna að margar góðar konur hafa komið til liðs við félagið. Þrátt fyrir aldur sinn er félagið mjög virkt og lifandi með yfir 90 félagskonur. Thorvaldsensfélagið hefur alla tíð haft mörg járn í eldinum við fjáröflun, svo sem rekstur Thorvaldsensbazars, útgáfu og sölu jólamerkja, jólakorta, gjafakorta og minningarkorta. Einnig hefur félagið útgáfu- og dreifingarrétt á bókinni Karíus og Baktus, eftir Torbjörn Egner, á Íslandi.
Engin félagskona fær greitt fyrir vinnu sína, en ef hægt er að meta ánægju af samstarfi og vináttu til launa, þá eru þau ríkuleg. Það er gæfa Thorvaldsensfélagsins að stjórnendur fjölmargra fyrirtækja og stofnana, sem og samborgararnir veita félaginu ómetanlegan stuðning með viðskiptum sínum og hafa með því hjálpað til við að létta undir með þeim er minna mega sín í þjóðfélaginu. Thorvaldsensfélagið hefur alla tíð borið hag barna fyrir brjósti, lét meðal annars byggja vöggustofu árið 1963 og dagheimili 1968 sem félagið gaf til borgarinnar.
Í áraraðir hefur Thorvaldsensfélagið styrkt barnadeildina sem var á Landakoti og síðar á Landspítalanum í Fossvogi til tækjakaupa og annarra hluta er þörf hefur verið á, en eftir að þær voru lagðar niður stofnaði félagið sérstakan sjóð við Barnaspítala Hringsins til styrktar sykursjúkum börnum og unglingum með 10 milljón króna framlagi. Félagið styrkir einnig fjölskyldur veikra barna, unglingastarf, vímuvarnir,verkefni í þágu aldraðra og margs konar landssafnanir.
Innan félagsins eru ráð, nefndir og stjórnir sem skipuleggja og sjá um hina ýmsu þætti starfseminnar. Aðalstjórn félagsins er skipuð sjö konum sem sjá um félagsmál, fundi, rekstur hússins Austurstræti 4 og almenn stjórnarstörf. Barnauppeldissjóður hefur sérstaka stjórn, formann og fjóra meðstjórnendur. Þeirra verksvið er að sjá um útgáfu jólamerkja og halda utan um sölu þeirra, hafa umsjón með minningarkortum og dreifingu og sölu á bókinni Karíus og Baktus. Í kortanefnd eru fimm konur, þær sjá um útgáfu, pökkun og dreifingu jólakorta og gjafakorta og halda utan um sölu þeirra. Bazarnefnd er skipuð sjö konum sem skipta með sér að fá konur til starfa í versluninni og eru verslunarstjóranum innan handar. Á hverju ári er tilnefnt í ferðanefnd, sem sér um sumarferðalagið, en það er eins dags ferð í júnímánuði. Einnig er tilnefnt í afmælisnefnd og sér hún um afmælishátíð þann 19. nóvember ár hvert. Þá er menningarnefndin. Í hana eru trjár konur tilnefndar og þær sjá um menningarferð, en þá er farið á tónleika eða á sýningar.
Af þessu má sjá að konur í Thorvaldsensfélaginu eru mjög virkar í félagsstarfinu, en þó situr engin kona lengur en sex ár samfellt í stjórn. Thorvaldsensfélagið er eitt af stofnfélögum Bandalags kvenna í Reykjavík og á þar yfirleitt fulltrúa í stjórn og nefndum. Þá hefur félagið átt fulltrúa í Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og í Menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar. Í þessum félögum eru haldnir fundir og námskeið sem konur Thorvaldsensfélagsins sækja. Það er gaman að vera í Thorvaldsensfélaginu og félagskonur halda vel saman og skemmta sér og ferðast saman innanlands og utan.
Stjórn félagsins 2019-2021:
Kristín R. B. Fjólmundsdóttir formaður, Ásdís Halldórsdóttir, Berglind Jónsdóttir, Gríma Huld Blængsdóttir, Halldóra M. Helgadóttir, Hanna Dóra Þórisdóttir og Sif Sigurvinsdóttir.
Formenn Thorvaldsensfélagsins
Fyrsti formaður félagsins var Þórunn Jónassen og var hún formaður í 46 ár samfellt og var elskuð og virt af félagskonum. Henni var mjög umhugað um að Landspítalinn yrði reistur og var fulltrúi í Landspítalanefndinni. Thorvaldsensfélagið minntist 40 ára afmælis síns með peningagjöf í Landspítalasjóðinn. Síðan vann félagið með öðrum kvenfélögum að fjáröflun í sjóðinn.
Áður fyrr voru konur oft kosnar til formennsku og stjórnarsetu í fjölmörg ár. Svanfríður Hjartardóttir var formaður í 22 ár og Unnur Schram Ágústsdóttir í 20 ár. Þær unnu félaginu vel með sínum stjórnarkonum og félagskonum og komu mörgum góðum málefnum til leiðar. Nú hafa verið sett lög um að engin getur verið lengur en sex ár samfellt í stjórn félagsins.
Formenn Thorvaldsensfélagsins frá upphafi
Kristín R. B. Fjólmundsdóttir 2019-
Anna Birna Jensdóttir 2013-2019
Kristín Zoëga 2010-2013
Sigríður Sigurbergsdóttir 2004-2010
Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir 1998-2004
Þóra Karitas Árnadóttir 1995-1998
Ingibjörg Magnúsdóttir 1989-1995
Evelyn Þóra Hobbs 1985-1989
Unnur Schram Ágústsdóttir 1965-1985
Svanfríður Hjartardóttir 1943-1965
Guðrún Stefanía Jónsdóttir 1936-1943
Ragnheiður Clausen 1932-1936
Franciska Juliane Olsen 1926-1932
María Ámundason 1922-1926
Þórunn Jónassen 1875-1922